Um TGJ

TGJ Teiknistofa Guðrúnar Jónsdóttur hefur verið starfrækt frá árinu 1984. Lengst af var stofan rekin af Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt en á undanförnum árum hafa synir hennar, Páll Jakob Líndal og Stefán J.K. Jeppesen, í auknum mæli komið að rekstri hennar. Við fráfall Guðrúnar í september 2016, tóku Páll og Stefán alfarið við rekstrinum undir merkjum TGJ ehf. ( TGJ – hönnun • ráðgjöf • rannsóknir ).

Í gegnum tíðina hefur TGJ Teiknistofa Guðrúnar Jónsdóttur komið fjölmörgum skipulagsverkefnum. Frá stofunni hafa komið svæðisskipulög fyrir stór landsvæði s.s. í Borgarfjarðarsýslu og Austur Húnavatnssýslu, hverfisskipulög fyrir Reykjavík, aðalskipulagsáætlanir fyrir einstök sveitarfélög og þéttbýlisstaði t.d. Djúpavogshrepp og Blönduós, auk fjölmargra deiliskipulagsverkefna bæði á Stór-Reykjavíkursvæðinu sem og víða um land.

Við hönnun bygginga hefur TGJ komið að verkefnum að ýmsu tagi, s.s. Klausturstofuna við Þingeyrakirkju, viðbyggingu við Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi og Vörðunnar, ráðshús Sveitarfélagsins Sandgerðis.
Byggingar- og menningararfur Íslendinga hefur ætíð verið í hávegum hafður innan veggja TGJ og hefur stofan unnið að verkefnum á sviði húsakannana, uppmælinga og endurgerðar gamalla húsa.

TGJ Teiknistofa Guðrúnar Jónsdóttur ( nú í dag TGJ – hönnun • ráðgjöf • rannsóknir ) hefur frá 1984 verið til húsa í Tjarnargötu 4 (4.h), 101 Reykjavík.