Teljarar settir upp á reiðhjóla- og göngustígakerfi Reykjavíkurborgar

20170710_143449Settir hafa verið upp teljarar á reiðhjóla- og göngustígakerfi Reykjavíkurborgar. Er þetta hluti af fyrirhuguðum teljurum sem Reykjavíkurborg áætlar að setja upp. Með þessu móti verður hægt að fylgjast m.a. með því hvar og hvenær álagið er sem mest í þessu samgöngukerfi, jafnframt sem þær upplýsingar sem teljararnir gefa, nýtast sem gott hjálpartæki til frekari uppbyggingar innan borgarinnar.