Settur var upp teljari í Dimmuborgum í Mývatnssveit í gær af starfsmanni TGJ. Teljarinn telur alla þá sem ganga inn um aðalhliðið niður í borgirnar. Fyrir var teljari sem telur bíla sem koma í Dimmuborgir. Mælirinn er færanlegur og er ætlað að gefa upplýsingar um fjölda fólks á friðlýstum svæðum á vegum Umhverfisstofnunar. Byrjað er í Dimmuborgum en svo fer mælirinn á flakk. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umhverfisstofnun.
Mælirinn er færanlegur og er ætlað að gefa upplýsingar um fjölda fólks á friðlýstum svæðum á vegum Umhverfisstofnunar. Byrjað er í Dimmuborgum en svo fer mælirinn á flakk.
„Upplýsingarnar nýtast til að sjá hvenær fólk er flest í Dimmuborgum. Við getum nýtt þær upplýsingar til að ákvarða hvenær við viljum hafa landvörð á svæðinu, hvenær við viljum bjóða upp á fræðslugöngur til að ná til sem flestra og ekki síst mun koma í ljós hvenær mannfjöldaálag fer að valda neikvæðum áhrifum á náttúrufar, t.d. ef gróðurþekja við stígana fer að rofna,“ segir Davíð Örvar Hansen, sérfræðingur Umhverfisstofnunar í Mývatnssveit, í tilkynningu.
Samkvæmt mælingum lögðu yfir 350.000 manns leið sína í Dimmuborgir á síðasta ári.